Fáránlegt kaftæði...

Þessi flutningur á stæðinu hefur greinilega verið ákveðinn af einhverju möppudýri hjá borginni sem hefur nákvæmlega ekkert vit á því sem þetta fjallar um...

Sjáum til:

 1. Leigubílstjóri sem ætlar að stæðinu til að taka upp farþega þarf að þræða sig í gegnum allan miðbæinn til að komast að stæðinu. Gengur aldrei, bílarnir verða stoppaðir löngu áður en þeir komast að stæðinu þannig að þeir sem þar standa fá enga bíla eða amk seint...

2. Oft er hreinlega ráðist á bílana með spörkum og tómum flöskum og fleiru. Þarna er útilokað að koma sér burt af staðnum ef það gerist. Hæglega er hægt að loka bíl inni og eyðileggja hann á fáeinum mínútum ef ráðist er á hann.

3. Aðgengi lögreglu og sjúkrabíla að skýlinu er ekkert.

4. Þó svo að breyta eigi ljósunum er útilokað að gera það svo vel sé. Ef 20-30 bílar renna í gegnum stæðið á segjum 5 mínútum gefur augaleið að úr þvi verður óleysanlegur hnútur á ljósinu.

5. Hefur stéttarfélag leigubílstjóra virkilega verið spurt álits? Ekki mér að vitandi og ég leyfi mér að efast um það. Eins leyfi ég mér að efast um að lögregla eða sjúkralið hafi verið haft með í ráðum.

6. Leigubílstjórar eru almennt sammála um að ætla ekki að sinna þessu stæði. Það er öllum ljóst að þessi staðsetning er sennilega sú versta sem hægt var að finna.

7. Ef íbúar í grend við gamla skýlið hafa orðið fyrir ónæði, er það ekki miklu frekar vegna þeirrar fáránlegu stefnu borgaryfirvalda að leyfa tugi bara og vínveitingastaða á einum ferkílómetra lands??

 

This sucks...


mbl.is Biðskýli flutt í Hafnarstræti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ég veit ekki til þess að hagsmunasamtök okkar bílstjóranna hafi verið spurt, amk ekki hinn almenni bílstjóri.

Flottar athugasemdir hjá þér, skýrar og réttmætar !

Ragnheiður , 23.9.2009 kl. 14:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband